Þjónustufyrirtæki fyrir jarðvinnuverktaka, byggingaverktaka, steypuverksmiðjur, fóðurframleiðendur auk fleiri iðngreina.

Kemís þjónustar einnig smábátahafnir, ferðaþjónustuaðila og sveitafélög með innflutningi, uppsetningu og viðhaldi á flotbryggjum, veitupóstum og fleiri tengdum vöruflokkum.

Skrifstofa Kemís og efnaverksmiðja er staðsett að Breiðhöfða 15, 110 Reykjavík.

Kemís er fjölskyldufyrirtæki og má rekja það aftur til 1902, en grænn litur fyrirtækjamerkisins er fenginn frá bátum Einars Þorsteinssonar sem hóf útgerð í upphafi tuttugustu aldar á vesturlandi. Síðar stofnaði sonur Einars, Kristján Jón Einarsson sem hafði siglt sem skipstjóri hjá föður sínum, útflutning á saltfiski. Var fyrirtæki hans skráð 1946 undir nafninu KJE. Sonur Kristjáns Jóns, Elías Kristjánsson breytti rekstri fyrirtækisins og svo nafni þess árið 1984 og hóf innflutning og framleiðslu á íblöndunarefnum fyrir byggingariðnað og fóðurefnis.

Kemis hefur síðan þá bætt við og sérhæft sig í vörum er varða jarðvinnslutækni, sprengiefni, jarðgangagerð, bortækni,vinnslu og frágangi auk þess að útvega viðskiptavinum okkar þær vörur og þjónustu sem þeir óska eftir.

þriðjudagur 7 september 09 2010
Nýjustu fréttir
Fyrstu gámar, Kemis.ehf með grindum sem notaðar verða í...
Kemis hefur nú tekið inn nýja vörulínu af jarðvegsdúkum...