CT-bergboltar

Hér hefur Ørsta þróað hágæða bolta sem eru sérhæfðir til notkunar í  tærandi umhverfi eins og í neðansjávargöngum, þar hefur salt og tærandi umhverfi engin áhrif. Boltarnir eru klæddir pólýetæyken hulsu sem kemur í veg fyrir hverskonar tæringu. Hefðbundir boltar eru galvaniseraðir. Við afar tæringaríkar aðstæður er einnig hægt að fá Combi-úðun ( viðbætt sink og lakkhúð).

Boltarnir eru fyrst festir með þennslumúffu og svo er steypuefju sprautað inn um hálfkúluna á boltanum, þar fer steypuefjan upp með hulsunni og kemur út hjá þennslumúffunni innst í holunni og fyllir svo upp í hana þar til steypa kemur út um annað gat sem er á þrýstiskífunni.

Hægt er að nota bergboltana um leið og þeir hafa verið festir, án þess að endilega að hafa fyllt í holrúmið með steypuefjunni.

Kostir CT-boltana:

  • Átaksþungi dreifist jafnt og þétt á allan legg boltans.
  • Pólýetýlenhulsa hylur boltana og kemur alveg í veg fyrir tæringu.
  • Fljótleg uppsetning
  • Hægt að leggja þunga á hann strax eftir uppsetningu.

þriðjudagur 7 september 09 2010
Nýjustu fréttir
Fyrstu gámar, Kemis.ehf með grindum sem notaðar verða í...
Kemis hefur nú tekið inn nýja vörulínu af jarðvegsdúkum...