Fyrstu gámar, Kemis.ehf með grindum sem notaðar verða í snjóflóðavarnargarð Bolungarvíkur eru komnar til landsins. Um er að ræða sérstyrktar grindur frá Maccaferri sem framleiðir grindurnar og útfærðu tæknileg atriði varnargarðsins.
Maccaferri hefur hannað og framleitt varnargarða víðsvegar um evrópu. Sérstyrkja þurfti hinsvegar efnið sem notað er í varnargarðinn við Bolungarvík þar sem snjóalög á Íslandi eru mun blautari og þyngri en þekkist víða.


![]()
Ósafl er framkvæmdaraðili og eru áætluð verklok 2012, Snjóflóðavarnargarðurinn verður um 710 metrar á lengd, en við varnargarðinn bætast svo átta snjóflóðakeilur. Um 400 þúsund rúmmetrar af fyllingarefni fara í verkefnið.

